Breytist Harry Potter?



Similar documents
Halldór Laxness og samband hans við þjóðina

Margverðlaunuð Philips-sjónvörp

Experimental Analysis of Facebook Marketing Using Conjoint Analysis and Eye Scanning

Leikur ungra barna Athugun á leik 2-3 ára barna Birgitta Brynjúlfsdóttir

Markaðsverð. ISK52,2 ma.kr.

Skrifin bakvið Brekkuna

Raunveruleiki málverksins

Sjálfsævisöguleg, söguleg skáldsaga

Snyrtivörur. KVÖLDFÖRÐUN með CliniQue. jón jónsson FRÍTT EINTAK. Fyrir herra. SPENNANDI HAUSTFERÐIR TIL BRETLANDSEYJA uppskrift. Fylgir Blaðinu!

Spurning: Lyfjaeftirlitsaðilar verða að tilkynna íþróttamönnum um fyrirhugað lyfjapróf með nokkurra tíma fyrirvara

F R É T T A B R É F F É L A G S U M I N N R I E N D U R S K O Ð U N

Konur í lögreglunni og bjargir þeirra

Umræður og lokaorð Viðauki Viðtal við Þórarinn Tyrfingsson Heimildir... 43

Íslenskir áfengisframleiðendur. -Markaðssetning á internetinu-

University of Akureyri

ADHD og námsörðugleikar

Breyttar áherslur í raungreinakennslu Umræður og vettvangsnám

FRAHALDSSKÓLASÝNINGAR VORÖNN 2015

BS ritgerð í viðskiptafræði. Tilurð smálánafyrirtækja

The principal duties of the flight operations officer/flight dispatcher (FOO/FD) as specified in Annex 6, Part I, are:

Lífið kílóum léttari á sálinni og nýorðin amma. Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack FERMINGARHÁR- GREIÐSLAN SKREF FYRIR SKREF 10

Klínískar leiðbeiningar um meðferð með ytri öndunarvél við bráðri öndunarbilun

Analysis of claim frequency and claim size using the Bayesian approach

Netflix nýjasti tímaþjófurinn

Íslam og jafnrétti: viðhorf Fatimu Mernissi og Aminu Wadud

...Þetta snýst ekki bara um líkamlega endurhæfingu...

Sjávarhiti, straumar og súrefni í sjónum við strendur Íslands

Ofbeldi í parsamböndum, reynsla gerenda í æsku og lýsingar þeirra á eigin ofbeldi gegn maka

KLÍNÍSKAR LEIÐBEININGAR UM ÁHÆTTUMAT OG FORVARNIR HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMA

Fjölskyldur á flótta

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 35 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

Use of Weather Data in Supply Chain Management. Elín Anna Gísladóttir. Thesis of 30 ECTS credits Master of Science in Engineering Management

Harry Potter: Lesson Plan!

Leikur Lars von Trier

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Panodil Brus 500 mg freyðitöflur Parasetamól

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Therimin Honung&Citron 500 mg, mixtúruduft, lausn. Parasetamól

EFNISYFIRLIT... 1 MYNDASKRÁ... 2 TÖFLUSKRÁ... 2 FYLGISKJÖL INNGANGUR ERU JARÐGÖNG SVARIÐ? HVAÐ ER HÆGT AÐ GERA?...

REFSINGAR OG ÖNNUR ÚRRÆÐI FYRIR UNGA AFBROTAMENN Á ÍSLANDI OG Í NOREGI

B.Sc. í viðskiptafræði

Skýrsla nr. C10:06 Notendastýrð persónuleg aðstoð og kostnaður við þjónustu við aldraða og fatlaða

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Donepezil Actavis 5 mg filmuhúðaðar töflur Donepezil Actavis 10 mg filmuhúðaðar töflur

Guðrún Marta Ásgrímdóttir lyfjafræðingur

BIM Adoption in Iceland and Its Relation to Lean Construction. Ingibjörg Birna Kjartansdóttir. Thesis Master of Science in Construction Management

Á. Bergljót Stefánsdóttir og Guðrún Pétursdóttir 2012 IÐNÚ. Á. Bergljót Stefánsdóttir og Guðrún Pétursdóttir 2012 IÐNÚ

Nr febrúar 2013 AUGLÝSING

MS - Hvar stöndum við í dag?

Sjálfkrafa loftbrjóst Yfirlitsgrein

Worldwide university ranking and its underlying basis: a perspective of university orientation towards excellence. Wenjie Xu

Áhrif vitrænnar þjálfunar hjá fólki með MS sjúkdóm

Hvað gerðist? Þrír erlendir bankar í eigu Íslendinga:* eftirmálar bankahrunsins. Hannes H. Gissurarson. FIH banki

PROJECT MANAGEMENT IN VENTURE CAPITAL ENDEAVORS. Magnús Ágúst Skúlason. Ritgerð til meistaraprófs (MPM)

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 31 ISSN árgangur ESB-STOFNANIR

Blood Bank Inventory Management Analysis. Elísabet Edda Guðbjörnsdóttir. Thesis of 30 ECTS credits Master of Science in Engineering Management

THE USE OF FREE AND OPEN SOURCE SOFTWARE BY ICELANDIC SOFTWARE DEVELOPERS

Ársfundur Orkustofnunar 2005 OS-2005/001

Rof- og setmyndanir við Sólheimajökul

Farþegaspá Grétar Már Garðarsson

Íslenska Word XP bókin

Gyper: A graph-based HLA genotyper using aligned DNA sequences

VINNULAG VIÐ GREININGU OG MEÐFERÐ ATHYGLISBRESTS MEÐ OFVIRKNI (ADHD)

Mat á árangri hugrænnar atferlismeðferðar í hóp við félagsfælni. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, Guðrún Íris Þórsdóttir og Brynjar Halldórsson

Farsóttaskýrslur. Tilkynningarskyldir sjúkdómar Farsóttagreining Sögulegar upplýsingar. Nóvember 2015

Brjóstagjöf síðfyrirbura

Medical Research in Developing Countries

Breiðvirkir β-laktamasar í Gram neikvæðum stöfum af ætt Enterobacteriaceae

A software development

FB Bókalisti vorannar desember På udebane 2, lestrarbók (ný útgáfa), verkefnabók og hlustunaræfingar.

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 31 ISSN árgangur ESB-STOFNANIR

Velferð og verðmætasköpun

RAUÐÚLFS ÞÁTTR VIKING SOCIETY FOR NORTHERN RESEARCH. Edited with translation and notes by ANTHONY FAULKES UNIVERSITY COLLEGE LONDON

Markaðsmál, uppruni og umhverfismerkingar Samantekt úr málstofu A. Dr. Jón Þrándur Stefánsson. September 8, 2010 Sjávarútvegsráðstefnan 2010

Fróðskaparsetur Føroya CAMBRIDGE ENGLISH EXAMINATIONS

Garðaskóli, Garðabær. Programme of studies

Customer Churn Prediction for the Icelandic Mobile Telephony Market. Emilía Huong Xuan Nguyen

Controlling the Effects of Anomalous ARP Behaviour on Ethernet Networks. Daði Ármannsson Master of Science January 2007

Gull í greipar Ægis - Antioxidants from Icelandic marine sources

Opinber gjaldmiðill á Íslandi

VETRARDEKK. Dekkin sem duga. Fáðu aðstoð fagmanna okkar við val á gæðadekkjum. Bighorn Presa Spike AT 771 Mudder MT 754

Skattamál 2013/2014 Skatta- og lögfræðisvið, janúar 2014

Transcription:

Breytist Harry Potter? Höfundur verkefnis: SjöfnÞórarinsdóttir J.K. Rowling gekk lengi með hugmyndina að Harry Potter í kollinum áður en hún settist niður og byrjaði að skrifa sögurnar. Rowling barðist við fátækt áður en fyrsta bókin hennar kom út og sagt er að hún hafi keypt ritvél á 5000 kr. til þess að skrifa handritið upp. Hún hafði ekki efni á að ljósrita það, svo hún skrifaði handritið upp þrisvar sinnum til þess að koma því til tveggja umboðsmanna og eins útgefanda. Bækurnar hennar um Harry Potter hafa notið gífurlegra vinsælda síðan fyrsta bókin, Harry Potter og viskusteinninn, kom út. Alls hafa fimm bækur um galdrastrákinn Harry Potter komið út, en sú sjötta, Harry Potter og kynblendingsprinsinn, er á leiðinni. Rowling segir að alls verði bækurnar sjö og fylgi Harry í gegnum skólaárin hans í Hogwartskóla. Árið 1999 keypti Warner bros kvikmyndaréttinn á Harry Potter bókunum og síðan þá er búið að gefa út þrjár kvikmyndir um hann, Harry Potter og Viskusteinninn, Harry Potter og Leyniklefinn og Harry Potter og fanginn frá Azkaban.

Harry Potter og Viskusteinninn Í þessari fyrstu bók J. K. Rowling hittum við fyrst fyrir strákinn Harry Potter. Frá því hann man eftir sér hefur hann búið hjá frænku sinni, Petuniu, og manni hennar, Vernoni Dursley, og hefur alltaf þurft að láta í minni pokann fyrir Dudley, syni þeirra. Foreldrar hans létu lífið í bílslysi þegar hann var mjög lítill. Eða það sögðu Dursleyhjónin að minnsta kosti við hann. Þegar Harry verður 11 ára kemst hann að því að hann er í rauninni galdramaður og hefur fengið inngöngu í Hogwartsskóla, skóla galdra og seiða. Hann kemst að því að foreldrar hans létu lífið við að bjarga honum frá illræmdum galdramanni, Voldemort, og að hann einn hafi lifað árásina af. Á leiðinni til Hogwartsskóla kynnist hann bestu vinum sínum, þeim Hermione Grainger og Ron Weasley. Þegar í skólann er komið lendir Harry í miklum ævintýrum. Hann er valinn leitari í Quidditchlið Griffindorheimavistarinnar, finnur þríhöfða hund, rekst á tröll, hittir Kentár, fær huliðsskykkju og bjargar galdraheiminum frá hinum illa Voldemort, sem er snúinn aftur.

Harry Potter og Leyniklefinn Sagan hefst aftur heima hjá Dursleyfjölskyldunni þar sem Harry hefur þurft að vera allt sumarið. Hann hefur ekkert heyrt frá vinum sínum úr Hogwarts og saknar þeirra sárlega. Fljótlega rekst hann á húsálfinn Dobby sem segir að hræðilegir hlutir munu gerast í Hogwarts og að Harry megi ekki snúa þangað aftur. Harry snýr samt sem áður aftur til Hogwarst á fljúgandi bíl Weasleyfjölskyldunnar. Með pompi og pragt byrjar hann nýtt ár í Hogwarts, og ekki síður viðburðaríkt. Í skólanum fara dularfullir hlutir að gerast. Harry heyrir raddir sem enginn annar heyrir og nemendur finnast steingerðir í kastalanum. Ritað stendur á vegg, þar sem fyrsta fórnarlambið fannst, að Leyniklefinn hafi verið opnaður. Harry, Hermione og Ron reyna að upplýsa málið og finna að lokum leyniklefann. Þar berst Harry við Voldemort í þriðja skiptið á ævi sinni og með góðri hjálp og úrræðum ber hann sigur úr býtum.

Harry Potter og Fanginn frá Azkaban Sagan hefst enn og aftur heima hjá Dursleyfjölskyldunni þar sem Harry hefur varið sumarleyfinu sínu. Þegar hann blæs frænku Vernons upp flýr hann frá frændfólki sínu yfir í galdraheiminn. Þar er gert mikið mál út af strokufanga frá Azkaban, Sirius Black. Þegar Harry kemur í Hogwartsskóla eru vitsugur að gæta skólans til þess að vernda nemendurna fyrir Siriusi. En Harry virðist vera hræddari við Vitsugurnar en strokufangann. Í spádómstímum virðist svartur hundur stöðugt vera á hælum Harry Potters og boðar það ekki gott samkvæmt kennaranum. En Harry kemst síðar að því að þetta er guðfaðir hans, Sirius Black, í dulargervi. Sirius var ranglega dæmdur í Azkaban og flúði til að sanna frelsi sitt.

Harry Potter og Eldbikarinn Eins og í fyrri bókunum hefst sagan heima hjá Dursleyfjölskyldunni þar sem Harry hefur þurft að húka allt sumarið. Hann hefur þó eitt að hlakka til, Weasley fjölskyldan hefur boðið honum að koma með á heimsmeistaramótið í Quidditch. Á mótinu verður uppi fótur og fit þegar tákn Voldemorts birtist fyrir allra augum. Þegar skólaárið hefst í Hogwarts er tilkynnt um þriggja skóla galdrakeppni sem Hogwarts tekur þátt í. Einn þátttakadi, á fimmta ári eða eldri, keppir fyrir hönd síns skóla. Til að skera úr hvaða nemandi sé bestur er notaður bikar sem velur hæfasta nemandann. Einhverra hluta vegna komst Harry í keppnina og neyðist til þess að takast á við þær þrautir sem að höndum ber. Þegar að síðustu þrautinni er komið bregður út af leiknum og Harry hittir þar fyrir mesta óvin sinn, Voldemort. Voldemort drepur andstæðing Harrys í þriggja skóla galdrakeppninni og hyggst gera það sama við Harry, en honum tekst að koma í veg fyrir ráðagerðir Voldemorts.

Harry Potter og Fönixreglan Enn og aftur þarf Harry að dúsa hjá Dursleyfjölskyldunni í sumarfríinu. Hann er algjörlega einangraður frá galdraheiminum og er mjög ósáttur við það. Eftir að Voldemort snéri aftur er Harry hræddur um að hann eigi eftir að fremja eitthvert voðverkið. Kvöld eitt þegar Harry er úti að ganga með Dudley reyna tvær vitsugur að ráðast á þá, en Harry fælir þær í burtu með verndargaldri. Eftir þetta er ekkert eins og það var áður. Harry komst að því að galdramenn hafa verið að fylgjast með honum í hvert fótmál til að vernda hann. Dursley fjölskyldan rekur hann að heiman en Dumbledore bannar honum að fara. Að lokum er hann sóttur til Dursleyfjölskyldunnar og farið er með hann heim til guðföður sins, Siriusar Black. Í húskynnum Siriusar eru höfuðstaðir Fönixreglunnar. En það er leynileg regla galdramanna og norna sem starfa gegn Voldemort. Loks þegar skólinn hefst eru flestir nemendurnir logandi hræddir um að Voldemort sé snúinn aftur og allt er með öðru sniði en áður. Hermione og Ron eru umsjónarmenn Griffindor heimavistarinnar og Harry er mjög öfundssjúkur út í þau. Hermione fær Harry til þess að stofna félag gegn myrku öflunum svo að hann geti deilt reynslu sinni með samnemendum sínum. Harry verður hrifinn af stelpu sem heitir Cho og það örlar svolítið á gagnkvæmri hrifningu hjá henni. Voldemort er að leita að gömlum spádómi um Harry og svífst einskins til þess að ná honum. Fönixreglan reynir að berjast gegn því að Voldemort nái spádómnum svo það kemur til átaka. Í slagsmálunum lætur Sirius lífið og Harry verður alveg hamslaus af sorg.

Þróun Harrys Potters í gegnum bækurnar. Fyrst þegar við hittum fyrir stráklinginn Harry Potter býr hann heima hjá móðursystur sinni, Petuniu og Vernoni Dursley manninum hennar. Hann hefur búið þar alla sína ævi og þekkir því ekkert annað. Þau koma illa fram við hann, láta hann ganga í gömlum fötum af syni þeirra, Dudley, og herbergið hans er pínulítil kompa. Þegar hann er nýorðinn 11 ára kemst hann að því að hann er í rauninni galdramaður. Hann fær inngöngu í Hogwartskóla, skóla galdra og seiða og kynnist alveg nýjum heimi. Til þess að sjá sem best hvernig breytingum Harry tekur í gegnum árin tel ég að best sé að skoða hann þegar hann dvelur hjá Dursleyfjölskyldunni. Þar hittum við hann fyrst og í lok hverrar bókar endar hann aftur hjá Dursleyfjölskyldunni. Fyrst þegar við sjáum Harry hjá Dursleyfjölskyldunni er hann mjög kúgaður og vansæll. Hann gegnir öllu sem þau segja honum möglulaust því hann veit að það dugar ekkert að kvarta. En það er ekki langt í uppreisnarandann í honum. Þegar honum berst fyrst bréf frá Hogwartskóla stendur hann uppi í hárinu á Vernoni til þess að fá að lesa sitt eigið bréf. Í fyrstu bókinni er Harry almennt feiminn og utangátta, enda er galdraheimurinn alveg nýr fyrir honum. Í annarri bókinni er hann farinn að bjóða þeim birginn, þó aðallega Dudley. Hann bullar töfraorð fyrir framan hann til þess eins að hrekkja hann. Oft þarf hann þó að borga það dýru verði með þungri refsingu. Dursleyfjölskyldan virðist líka vera hálf smeyk við Harry í annarri bókinni, en það dregur ekki mikið úr fjandsemi þeirra í hans garð. Í þriðju bókinni er Harry enn meira farinn að færa sig upp á skaftið. Hann mútar Vernoni til þess að skrifa undir leyfisbréf og stendur síðan ekki við loforðið og blæs frænku Vernons upp. Harry strýkur að heiman og heldur til Skástrætis. Þetta hefði hann aldrei gert í fyrstu bókinni. Líkast til vegna þess að hann þekkti ekki galdraheiminn þá. Í fjórðu bókinni sýnir Harry mikið skeytingaleysi í garð Dursley fjölskyldunnar. Hann hæðist að Vernoni og svarar öllum ásökunum hans fullum hálsi. Harry virðist vera búinn að ná undirtökunum á heimilinu. Sérstaklega með því að hafa fundið Sirius Black, guðföður sinn í þriðju bókinni. Dursley fjölskyldan veit að ef þau fara illa með Harry kemur Sirius til að rétta hlutina við. Í fimmtu bókinni er Harry greinilega búinn að ná yfirhöndinni í samskiptum sínum við Dudley. Dudley er logandi hræddur við að Harry geri honum eitthvað ónáttúrulegt. Harry sýnir sama skeytingaleysið í garð Vernons og Petuniu í fimmtu bókinni og í þeirri fjórðu. Hann lýsir vanþakklæti sínu til þeirra og vill endilega fara frá þeim og snúa aldrei aftur en Dumbledore kemur í veg fyrir það. Í skólanum virðist Harry ekki taka neinum breytingum í bókum eitt og upp í bók fjögur. Persónan Harry Potter heldur sér nokkuð svipað í gegnum þessi fjögur ár, frá 11 ára upp í 14 ára. Þó virðist frægðin vera að stíga honum smátt og smátt til höfuðs þar sem öll atburðarásin snýst meira eða minna um hann. Í fimmtu bókinni virðist vera smá vitundarvakning hjá honum. Hann verður ósáttur við hlutskipti sitt gagnvart Ron og Hermione, því þau fengu þann titil að vera umsjónarmenn Griffindor. Hann fer einnig að sýna stelpum áhuga og verður hrifinn af stelpu sem heitir Cho. Hann gerir meira af því að bjóða kennurum birginn og stofnar félag í Vörnum gegn myrku öflunum á bak við kennarann. Fyrst í fimmtu bókinni virðist Harry vera kominn á gelgjuskeiðið.

This document was created with Win2PDF available at http://www.daneprairie.com. The unregistered version of Win2PDF is for evaluation or non-commercial use only.